|
|
31.12.2006 16:48:12 / davíð
Ég var að
lesa Vikuna áðan fram í sófa í mestu makindum. Var að lesa
Völvuspánna, það er svona skylda á gamlársdag. Ég las þessa
Völvuspá og svo las ég restina af blaðinu.. Ég rak augun í
skemmtilega grein sem vakti mikinn hlátur hjá mér á pabba, en
í raun er hún dauðans-alvara. Ég ætla að gefa
ykkur brot úr greininni góðu..
"Villt steggjapartí fór heldur betur úr böndunum í Sviss nýleva
þegar 32 ára gamall brúðgumi gaf upp öndina. Ólán þetta átti sér
stað meðan brúðguminn naut þjónustu matrónulega vaxinnar fatafellu,
sem vinir hans höfðu leigt í tilefni dagsins. Skálastærð stúlkunnar
er 36 DD. (ekkert smá?) Stúlkan sat í kjöltu mannsins og hristi
barminn framan í hann af hjartans lyst og segja vitni að maðurinn
hafi virst kunna vel að meta trakteringarnar. Hann hafi þó eitthvað
farið að baða út öllum öngum þegar leið á "dansinn", en viðstaddir
hafi talið það til marks um mikla innlifun en ekki hjálparbeiðni.
Að lokum varð þó öllum ljóst að maðurinn var látinn. Ættingjar
mannsins hafa bæði höfðað mál gegn fatafellunni og lækninum sem kom
sílíkonfyllingunum fyrir í brjóstum hennar. "Þetta er vítavert gáleysi," segir
faðir mannsins. "Brjóst þessi eru
banvæn vopn". Vinir brúðgumans eru vitanlega slegnir yfir
atbutðinum en eins og einn þeirra sagði; "Það er vel hægt að hugsa sér verri dauðdaga
en að kafna í brjóstum af yfirstærð"
Jeeeesús kristur, hversu fáránlegt getur fólk verið?..
hahaha
Strákar, enga strippara þegar ég verð steggjaður í framtíðinni!
Þetta eru bara banvæn vopn!

Ætli þetta hafi verið einhver af þessum? hahah
»
27.12.2006 21:22:44 / davíð
Allir búnir
að heilsa uppá ættingjana í jólaboðunum, fá sér hangikjet og
ís og spjalla, þakka fyrir sig, segja sögur og hlusta á sögur?
Jæja, ég er búinn allavega, kláraði skamtinn í gær. Fór í
jólaboð hjá fjölskyldu pabba á jóladag, mmm hangikjöt,
laufabrauð, ís og endalaus jólamatur. Það eru alltaf að bætast
við lítil kríli í þessa ætt, þarna voru 3 lítil.. ekkert smá
gaman af þeim. Ég fór eiginlega að velta því fyrir mér útaf
því að ég er verðandi frændi (s.s. systir mín er ófrísk) og á
von á því í Febrúar.. það er smá séns að þetta lendi á 17. sem
er afmælisdagurinn minn.
Gallar; Ef systir mín
eignast barn 17. þá er ekkert merkilegt við afmælisdaginn minn, þá
á ég ekki "minn" dag. Það er ekki nógu gott sko.
Kostir; Ef systir mín
eignast barn 17. þá get ég látið eins og hálviti í barnaafmælunum
og étið kökur og svona góðgæti, útaf ég er líka afmælisbarn..
Hvað finnst ykkur ? ætti ég að vilja deila deginum mínum?
Vá hvað ég verð fyndinn frændi, ég kann ekkert á svona litla
krakka, nema leika við þá. Þar er ég sérstaklega góður. En ég er
búinn að koma því sterkt fram að ég ætla ekki að vera babysitter,
nema í emergency's Ef að krakkinn væri svangur þá myndi ég
örugglega bara henda skrípóspólu í tækið, kann ekkert að svona. En
ég hlakka samt til að verða stór frændi, =)
Ég er búinn með allar mínar hefðir, sú síðasta og jafnframt
mikilvægasta hefðin mín á sér stað á annan í jólum. Hefðin tekur
svona sirka 90 mínutur + viðbótartími og í verkið þarf malt,
appelsín, brauð, hangikjet. Nú það er svoleiðis að ég og faðir minn
tökum okkur saman, kveikjum á sjónvarpinu og stillum á Manchester
United leikinn, (að þessu sinni á móti Wigan) Svo er haldið fram í
eldhús, pabbi rífur fram hangikjetsrúllu og ég fer fram í frysti og
næ í klaka og malt og appelsín.. Pabbi smyr brauð og sker nokkrar
vel valdar sneiðar á brauðið meðan ég blanda malt+appelsín eins og
við viljum hafa það ... 74-26% Svo sitjumst við niður og horfum á
okkar menn í United taka öruggan sigur 3-0 vs. Wigan og skolum
þessum sigri niður með ölinu góða.
Engin af ykkur með svona hefðir
sem að eru ekki "venjulegar" ? Ooog, hverjir ætla strengja
áramótaheit?
»
25.12.2006 17:46:14 / davíð
Ætla að
byrja þetta blogg á einu góðu andvarpi.. Aaaaaaaaahhhhh..
Þá er afmæli jesús búið og allir að vinna í því að éta sig
spikfeita til að heiðra frelsarann. Ég veit allavega að ég er búinn
að heiðra hann með allskyns góðgæti, búinn að éta á mig gat. Eini
tíminn sem maður fær til að melta er meðan maður sefur. Lovely.
Einhvernveginn er ég ekki jafn
spenntur fyrir þessu jólastússi og ég var alltaf á yngri árum, sem
er bara synd. Það var allur heimurinn að farast þegar jólin voru að
koma og maður reyndi að vaka allar nætur fram að jólum til að reyna
að góma jólasveininn að lauma í skóinn sinn. Aldrei tókst það,
lennti samt stundum í því að pabbi kom inn í herbergi og spurði
hvort ég væri ekki sofnaður, þá sagði ég honum mjög yfirvegaður og
svalur að ég væri að njósna um sveinka, ætlaði sko að góma kallinn
glóðvolgan.
Þetta
minnir mig á söguna hvernig ég fattaði að jólasveinninn væri ekki
til, úff.. erfiður tími í mínu lífi.
Eitt kvöld þegar mig minnir að skyrgámur átti að koma og lauma
góðgæti í skóinn þá segir mamma við mig. "Þú verður nú að passa þig
annars færðu bara kartöflu í skóinn!". Ég var búinn að vera
hrikalega leiðinlegur um daginn og átti ekkert skilið nema úldna
kartöflu. En, þar sem ég var í mínum huga með hreina sakaskrá þá
svaraði ég einfaldlega "Haha, ekki séns að ég fái kartöflu", voða
ánægður með mig. Nú, ég fer að sofa og vakna mjög spenntur daginn
eftir til að vita hvað sveinki lumaði til mín um nóttina.. Ég leit
í skóinn minn og trúði ekki eigin augum. KARTAFLA!? Hvað hélt
eiginlega þessi skeggjótta fitubolla að hann sé að gefa mér
kartöflu!. Þetta mátti mamma mín ekki vita, ég var búinn að hlæja í
andlitið á henni af þessari tilhugsun að fá kartöflu í skóinn minn.
Ég lá upp í rúmi í nokkrar mínútur og datt síðan snjallræði í hug.
Ég tók kartöfluna, hljóp með hana niður í eldhús og setti hana í
ruslið, alveg neðst. Svo fór ég aftur upp í herbergi og fann dót
sem að ég átti fyrir, en var svona nokkuð viss um að mamma vissi
ekki að ég ætti það, og setti það í skóinn. Fór svo aftur að
sofa.
Þegar mamma vaknar þá spyr hún mig, "hvað fékkstu í skóinn?". Ég
náttúrulega svaka kaldur segi bara, æji ég fékk svona dótabíl hérna
og sýndi henni bílinn sem ég var búinn að eiga í svona hálft ár. Þá
segir hún "bíddu, fékkstu ekki kartöflu?" ..... og þá fattaði ég
það, "Hvernig í fjandanum vissi hún að ég hafi fengið kartöflu í
skóinn?? Ég faldi öll sönnunargögn!!"
Úff, ég tárast við að skrifa þessa sögu.. sorglegur tími í mínu
lífi.

Haha, og ég sem var óánægður með kartöflu.. 
Ég vona að
AnnaRún geti farið að drattast heim til sín svo að hún geti fengið
pakkann sinn, (sem ég pakkaði sjálfur inn, btw) 
Gleðileg jól krakkar, kv. bitill-
»
23.12.2006 02:34:38 / davíð
Tek þetta á mig, blogga bráðlega.. mikið búið að vera í gangi hjá
mér en kemur jólablogg bráðlega.. úff
»
06.12.2006 14:36:58 / davíð
Sæl, hvað segiði?
Ég veit ég var búinn að segja að það myndi ekki koma mikið inn á
síðuna fyrr en eftir prófin. En ég er bara í svo fjandi góðu skapi
að ég get ekki að því gert. Síðustu dagar, búin að vera bara ágæt
próf ég er ekki búinn að vera að deyja úr lærdóm og er núna í fríi
fram á mánudaginn þannig að þetta er allt í gúddí.
Á ég að segja ykkur afhverju ég er í svona góðu skapi? Ég er búinn
að finna besta jóladisk sem ég hef hlustað á! hahah, Þetta eru
auðvitað snillingarnir í kántrísveitinni Baggalútur sem gerðu
þennan disk fyrir nokkrum árum.. Þarna eru klassa lög sem flestir
þekkja ekki sem jólalög, eins og t.d. Thunderstruck með AC/DC
heitir Föndur Stund. "I got you babe" breytist í "Ég vil rjúpur" og
margt annað algjör snilld og bara fyndið. + Það að söngvarinn er
algjör sprengja hann nær Bon Jovi eins og að drekka vatn, alla
þessa rokksöngvara og tekur þá í nösina.. Ég ætla að gefa ykkur
brot af texta og uploada einu lagi fyrir ykkur til að heyra! 
Heyrðu, uppáhaldið
mitt varð fyrir valinu..
Náið í lagið hérna! 
http://www.bitill.minnsirkus.is/Members/files/9584/94132
"Það er Þorláksmessa (It's the
final countdown)
Þorláksmessa
Voo-ó
Ég trúessu ekki
Já nú er það
svart
Er verið að
loka,
er klukkan það margt?
Ég á eftir að kaupa allt!
Pakka og tré,
Mér finnst þetta ferlega ósanngjarnt!
Það er Þorláksmessa.
Ég nennt'ekk'að
bíða
biðröðum í.
Ég datt frekar
í'ða
í skötupartý,
jeeeh..
Í kyrrstæðum
rúllustiga,
ég stend hérna
einn
og Kringlan er galfokkingtóm"
Það er Þorláksmessa.
Algjörir snillingar.
-bitill
»
03.12.2006 15:18:33 / davíð
Halló. Ég ætlaði bara að setja inn hérn örstutta færslu
til að segja ykkur að ég er að byrja í prófunum og ég verð
búinn held ég 13. des. Þannig að það verður voða lítið að
gerast á síðunni þangað til. Ég skal samt lofa því að ég kem
með eitthvað voða hresst og skemmtilegt um leið og ég er
kominn í jólafrí.
P.S. Hversu leiðinlegt er það að verða veikur daginn áður en maður
byrjar í prófunum? Arg. 
Mér fannst þessi helvíti góð. Held að krakkinn sé næstumþví jafn
hræddur við þennan gæja og ég við íslensku prófið á morgun.
Gangi ykkur vel þið sem eruð að fara í próf 
-bitill
»
29.11.2006 23:03:18 / davíð
Nú tekuru 10
sekúndur til þess að lesa fyrirsögnina og spá í því hvað hún
þýðir..
Sæl. Nú líður að
jólum og líður að prófum og líður að alls konar hlutum. Ég veit
ekki með ykkur en ég er að pæla í að hugsa ekkert um jólafríið fyrr
en prófin eru búin. Það tekst ekki. Var að uppgötva það í dag að
ég er að skíta upp á bak í hverju einasta fagi, nema kannski ensku.
Næstu dagar/vikur verður maður að reyna að klóra í bakkann fyrir
prófið.
Ég eignaðist nýjan vin í dag, við gerum allt
saman.. vöknum saman, förum saman í skólann, borðum saman, horfum
saman á sjónvarpið og.. jafnvel tek hann stundum með mér á
klósettið. Vinur minn heitir "Brennu-Njáls Saga" og er bara nokkur
hundruð blaðsíður. Ég byrjaði að lesa hana í dag og eins spennandi
og félagi okkar Gunnar á Hlíðarenda getur verið þá bara dett ég
alltaf út.. Hvet alla áhugasama til að kíkja á
www.123.is/hesta-atid .. klassa síða þarna á ferðinni.. Fyrst við
erum að tala um íslensku, þá ætla ég að segja ykkur frá því hvernig
ég var niðurlægður í ÍSL 303 tíma í gær. Við vorum að læra um
kvæði, helgikvæði, dróttkvæði og annað slíkt.. og eins og gengur og
gerist stundum
... alltaf, í íslenku þá datt ég út, hlustaði ekkert á það sem var
verið að segja og var bara í eigin heimi. Svo ákvað ég í huganum
"hey, núna ætla ég að fara að hlusta.. reyna að læra eitthvað.."
Frábær hugmynd, metnaðurinn kom streymandi eins og endorfín eftir
maraþonhlaup... Ég hlustaði í svona tvær sekúndur.
Marta Jó ísl
kennari; Hvert er frægasta helgikvæði sem til er?
Davíð Már Gunnarsson kallar yfir bekkinn: Tjah nú auðvitað
biblían!
Rétta svarið var; Lilju kvæði.
Æjæjæj, ég
fékk kjánahroll frá toppi til táar. Og hláturinn var hár í bekknum.
Ég heyrði bara "frægasta" "helgikvæði" sem ég tengdi strax við
heilagt eitthvað, hlítur að vera biblían!.. Það borgar sig að hlusta í tíma,
haaa?
Ballið á föstudaginn,
ætla ekki að skrifa mikið um það.. Fyrirpartýiin, geggjað gaman.
Ballið sjálft, ikke så godt. Ætla hætta núna, Vinur minn saknar
mín. Ætla fara'ð lesa'ann!
Læt eina beyglaða
fylgja með frá því á föst.
Í lokin ætlar þú núna að skrifa í skoðanir það sem þú fékkst út
þegar þú last fyrirsögnina..
-bítill
»
20.11.2006 00:08:17 / davíð
Damn, ég
vona að það verði svo snjóhvít jól að maður sjái ekki í
göturnar, gangstéttir, biðskyldur og
stoppmerki.
Ég er búinn að
vera að velta því mikið fyrir mér hvenær maður á að komast í
jólafílingin. Var á rúntinum um daginn, sá hús sem var búið að
skreyta í gluggunum. Hrissti
hausinn og keyrði áfram. Þá kemur jólalag í útvarpið.
Hrissti hausinn og skipti um
stöð. Ég kemst einhvernveginn aldrei í þennan fíling fyrr en
á Þorláksmessu, búinn að skíta alveg upp á bak með því að gleyma að
kaupa gjöf handa einhverjum, hlaupandi um Kringluna/Smáralindina
með budduna í eftirdragi galtóma, og kortið svo útúrstraujað að
maður gæti brennt sig á því. *Hvenær komist þið í
jólafílinginn?*
Ég þoli ekki að
eiga ekki pening..
En ég fór í bæinn í gærkvöldi, planið var að skella
sér á Bond, James Bond. Jújú, fórum á jeppanum hans Atla, með dekk
í aftursætinu sem Atli ætlaði að selja einhverjum manni í leiðinni.
Komum inn í Smáralind og sáum þar rosalega röð, en sem betur fer
var Pabbinn (Einar Trausti) búinn að sjá fyrir öllu og panta miða,
en ef hann hefði ekki gert það þá hefðum við nú víst ekki komist á
myndina, enda troðfullur salur.
Bondarinn var nú bara þokkalega góður,eða ég var allavega sáttur
með kallinn. Hann var nokkuð svalur, þó svo að hann sé ekkert
voðalegt hott stuff, þá er maðurinn heeel massaður. Það eitt er
víst að þetta er örugglega massaðasti bondinn hingað til.
*Hvað segja stelpurnar? Bondinn,
hot or not?*
Haha, easy tiger.
Get samt ekki gert að því að mér finnst
hann meira vera BadGuy týpan, sem leikur skúrkinn, eða allavega
líta út fyrir það.
Þessi er meira
vondur heldur en góður.
Anyways, eftir
myndina þá ætluðum við að rúlla þarna til kallsins sem að ætlaði að
kaupa dekkin. Myndin var nú fjandi löng og klukkan var orðin 2
þegar við komumst loks af stað úr bíóinu. Svo byrjuðum við á því að
ætla að finna þennan stað. "Flétturimi, þetta er hérna rétt hjá
maður!".
Glæsilegt, hugsaði ég.. þá kemst maður kannski tiltölulega snemma
heim. En nei nei, þegar við komum út úr bíóinu þá var algjör
snjóbilur úti! Það sást varla í bílinn á undan okkur og allir
keyrðu á 60km hraða. Það var svosem allt í lagi, Flétturimi var
þarna rétt hjá.
Til að gera langa sögu stutta, þá tók það okkur rúmlega klukkutíma
að finna helvítis götuna. Nokkur símtöl í kallinn sjálfan, símaskrá
og loksins heimsókn Einars Trausta inn á Pöbb þarna í nágreninu
skiluðu okkur loksins réttum upplýsingum. Svo þegar við komum heim
til þessa kalls og Atli vippar dekkjunum út að sýna honum, þá segir
hann.. "Þetta er ekki Michelin dekk!". Djöfullinn sjálfur, ekki
keyrðum við í rúmlega klukkutíma framm og til baka bara til þess að
kallinn gæti hætt við að kaupa þessi dekk. Á endanum sætti hann sig
við þessi dekk og við gátum lagt af stað heim. Vúhú!.
Einar, á leiðinni
inn á pöbbinn í gær að spyrja til vegar.. 
Öskubuska bara búin, váá.. Það verður skrítið að þurfa ekkert að
mæta niður í leikhús, held að það finnist öllum krökkunum það. En
ég ætla ekki að skrifa meira um öskubusku, kominn með leið á því.
Núna getur maður farið að snúa sér að öðru.. T.d. BALLINU á
föstudaginn! *Ætla ekki örugglega
allir að skella sér á ballið?*
Ójá, sjáumst
þá...
(svörin við *bolduðu* spurningunum, svarist í
skoðanir.. takk)
»
18.11.2006 14:35:15 / davíð
Ég var að
gera nýtt (Um Davíð). Það er komið inn, samt með svona gamla
bragðinu.. Nennti ekki að búa til einhverjar fullt af nýjum
spurningum, kemur kannski seinna. En svo er síðan öll í
vinnslu, ég ætla að reyna að fríska uppá mína heittelskuðu á
næstu misserum.. þannig að, stay tuned 
adios..
»
15.11.2006 22:47:38 / davíð
Ég ákvað að skella einu bloggi hérna inn á gömlu góðu
síðuna. Ég hef ekkert að gera, og á þessum stundum finnst mér
fínt að setjast niður og negla nokkur orð niður á lyklaborðið,
svona til að hjálpa tímanum að líða. Ég hefði nú líklegast
skrifað á 2merdir síðuna en þar sem að bloggar.is er að skíta
upp á herðarblöð þá ákvað ég er að fríska aðeins upp á gömlu
síðuna mína.. Hvernig finnst ykkur nýju lúkkin hjá
blog.central? Kom mér allavega á óvart þegar ég var kominn með
leið á kerfinu og stofna aðra síðu þá koma þeir með fullt af
nýjungum og drasli sem mér finnst gaman af.
Svo hef ég líka alltaf verið hrifinn af þessari
síðu, hún er búinn að fylgja mér í gegnum mörg blogg.. Bæði fýlu og
kátínu blogg, sorgar og ánægju, vonar og reiðisblogg.
Öskubuskan kom nú heldurbetur vel á óvart, búið að sýna um 17
sýningar og stappað á allar sýningarnar held ég. 3 sýningar eftir,
á föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn er lokasýningin. Þeir
sem að hafa ekki séð leikritið eiga örugglega eftir að naga sig í
handarbakið ef þeir panta ekki miða núna, ég get tekið frá fyrir
einhverja áhugasama, tala bara við mig í skólanum, eða einhvern af
krökkunum sem eru í leikritinu.
Úr Öskubusku.
Anton, Helgi, Atli og Ég.
Á morgun verður
heldurbetur gaman. Þá er MORFÍS ræðukeppnin hjá FS. Við ætlum okkur
að sjálfsögðu að fara og styðja snillingana í þessu liði, þeir eru
heldur betur fyndnir. Bara gaman af vitleysunni í þeim. Svo
eftir.MORFÍS er rúta heim, og allir skella sér auðvitað á
Kaffihúsakvöld á PADDYS.
Þar verða nokkrar hljómsveitir að spila og svo eftir það þá tökum
við Atli nokkur lög til að halda mannskapnum vakandi, hmm hmm.
Endilega allir að kíkja..
Þetta eru
vitleysingarnir í ræðuliðinu. Helvíti gaman af þeim.
Ég vil fá að sjá eitthvað krassandi á morgun! 
En ég er með
spurningu fyrir ykkur sem að lesið þetta blogg.
Hvort finnst ykkur ég ætti að halda áfram og skrifa
með Einari á 2merdir síðuna, eða gera þessa upp og gera hana
flotta(ri) ? Þannig endilega ég vil fá svör í comment,
2merdir vs. /bitill- ???
»
09.10.2006 21:42:29 / davíð
www.2merdir.bloggar.is
ný síða að fara í loftið, tjekkið á henni
bavíanar!..
»
18.09.2006 18:38:52 / davíð
Haha, já mjög eftirsóttar myndir úr partýinu hjá Einari
Orra eru komnar inná. Ég var samt skemmtilegur við nokkra
drengi og tók grófustu myndirnar útaf.. haha, þær getur fólk
nálgast í gegnum msn. höö. Njótið, þetta er hérna niðri til
vinstri.
P.S.
blogg væntanlegt á næstunni.
Endilega commentið á myndirnar, vúha...
»
09.09.2006 15:21:03 / davíð
Mér finnst
dagarnir þjóta hjá og ég kem litlu í verk.
Ég er þó alls ekki að segja að mér leiðist, hell no.. ég er drullu
busy þessa dagana og oftast nær þreyttur. Samt finnst mér ég ekki
vera að gera neitt. Oh well..
Busaballið frábæra var á fimmtudaginn, eitt skemmtilegasta ball sem
ég hef farið á. Dansaði held ég bara allan tímann nema þegar maður
var að fara að fá sér að drekka. Þakka Magna líka fyrir
fyrirpartýið, það var frábært.
Ég er ánæðgur með leikritið sem að verður sett upp í Frumleikhúsinu
innan skamms, það verður gaman. Skemmtilegur hópur og vonandi
skemmtileg sýning.
Mér líður eins og
frekju. Get aldrei orðið fullkomlega ánægður, ég vil eitthvað og fæ
það, þá vil ég bara eitthvað annað. Hlutir sem geta bara gefið
manni stundaránægju. Ég vil eitthvað meira en
það..
Afhverju finnst mér eins og þetta blogg sé svolítið eins og lífið
mitt þessa dagana.. Ég hef frá ofboðslega miklu að segja, en samt
er bloggið ekki nema nokkrar línur..
Til að lengja þetta yfirborðskennda blogg mitt ætla ég að láta
brot af texta úr lagi fylgja með..
I should have
known better with a girl like you
That
I would love everything that you do
And I
do, hey, hey, hey, and I do.
Whoa,
woah, I never realized what a kiss could be
This
could only happen to me;
Can't you see,
can't you see?
Þú ert best/ur ef
þú veist hvaða lag þetta er..
-bitill
»
03.09.2006 12:29:13 / davíð
Dang, þessi
ljósanótt var svolítið allt of snögg að líða hjá. Ég sé eftir
henni.
Í gær þá var allt morandi í partýum allsstaðar, og í minni götu
voru tveir hópar að berjast um besta partýið. Ég var bara eitthvað
að chilla og fara að fá mér ljúffengt grillkjöt þegar ég lít út um
gluggan og þá koma svona 15 hjól, krúsandi inn götuna og bættust
við þvílíkt stóran hóp hjóla innst í götunni. Þegar ég segi
hjól þá er ég ekkert að tala um Mountain Bike, heldur Harley
Davidsson og annað álíka kúl. Nú, eins forvitinn og ég er þá þurfti
ég aðeins að hnýsast fyrir og haldiði ekki bara að Sniglarnir hafi
safnast saman í grillpartý í enda götunnar. Ég var nokkuð viss um
að þetta partý myndi vera besta partýið í götunni, þangað til
nokkru seinna þá er ég á rölltinu og beint á móti mínu húsi var
fullt af bílum. Mér leið bara eins og ég væri að taka þátt í
söngleiknum Grease, afþví að þetta voru allt svona fornbílar..
Ógeððslega flottir. Nú var komin mikil samkeppni í þetta partýstríð
og ég ákvað bara að flýja í Poker til stóra mannsins.
»
25.08.2006 21:15:27 / davíð
Flaug í
hausinn á mér skemmtileg pæling í dag.
Ég var staddur á Gaypride hérna um daginn og þar voru allir
litríkustu hommar landsins saman komnir ásamt félugum sínum,
lessunum . Og, þetta voru alls ekkert fá stykki. Í rauninni miklu
fleiri heldur en ég hafði grun um. Ég hafði ýkt gaman af þessu
showi og fer örugglega aftur á næsta ári, allir voða kátir og voða
gaman hjá öllum. En svo hefur þetta alltaf verið að koma betur inn
í hausinn á mér, og niðurstaðan sem að ég fékk út var sú að það er
í tísku að vera hommi í dag. Þessi tískubylgja er ekki bara að
tröllríða Íslandi, heldur heiminum eins og hann leggur sig. Nú eru
eflaust nokkrir sem hugsa með sér, "hvað er drengurinn að rugla?".
En leyfið mér að rökstyðja þetta með nokkrum skemmtilegum
punktum.
- Dj. Paul Oscar,
frábær karakter og fanta góður plötusnúður. En Páll Óskar hefur
bara aldrei verið jafn vinsælli og núna, árið 2006.
Skemmtistaðirnir halda varla vatni yfir manninum. Vill svo
skemmtilega til að hann er Gay.
- Gæjinn sem var/er
að gera allt vitlaust á FM957, nei ég er ekki að tala um Heiðar
Austmann. Veit ekkert um það hvort að hann sé hommi, en allavega þá
er það náunginn sem að söng fyrir hönd Rúmeníu í Eurovision þetta
árið. Lagið Tornero sem verður að segjast er pretty gay en gaurinn
nær furðulega hárri tóntegund. Bendir allt til þess að hér sé hommi
á ferð.
- Hnakkavæðingin á
Íslandi er eitthvað sem er að gerast, hægt og bítandi.. og svosem
ekkert við því að segja, nema ef við pælum aðeins í málinu þá kemur
í ljós að tískan (t.d. fötin og hárgreiðslan) eru að verða meira og
meira hommalegri með hverju árinu sem að líður. Hérna áður fyrr þá
gat maður þekkt homma þegar maður sá þá út á götu en núna getur
þetta alveg eins verið 14 ára unglingsstrákur sem að er að reyna að
fylgja tískustraumunum. Að vera metro myndi ég kalla
gagnkynhneigðan mann sem er að detta inn í hommatísku.
Hóst.
Engir hommar voru
særðir við gerð þessa bloggs.
hvað finnst ykkur ?
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|